Brynjar Narfi skoraði eitt flottasta mark Evrópudeildarinnar
Sævar Jónasson

Brynjar Narfi Arndal, leikmaður FH, átti eitt af fimm flottustu mörkum 1. umferðar Evrópudeildar karla í handbolta að mati EHF.

Brynjar Narfi var í stóru hlutverki hjá FH þegar liðið hóf riðlakeppnina gegn Bidasoa Irun á Spáni í gærkvöldi. FH veitti spænska liðinu harða keppni en varð að sætta sig við tveggja marka tap, 39-37. Staðan í hálfleik var 18-14 fyrir Bidasoa. 

Brynjar Narfi átti jafnframt frábæran leik. Hann skoraði átta mörk úr aðeins níu skotum og var markahæstur FH ásamt Símoni Michael Guðjónssyni, sem skoraði einnig átta mörk.

Eitt marka Brynjars Narfa vakti sérstaka athygli og komst á lista yfir fimm flottustu mörk umferðarinnar. Mark Sören Steinhaus hjá Bergischer HC var valið það flottasta en í raun var það ekkert rosalega fallegt, heldur var það mikilvægt enda var það sigurmark leiksins stuttu fyrir leikslok en Brynjar Narfi var í öðru sæti úrvalsins. Á eftir honum komu Emil Bergholt hjá Flensburg, Daniel Mosindi hjá MOL Tatabánya og Mikael Lopes hjá Torrelavega.

Brynjar Narfi verður aftur í eldlínunni á laugardagskvöld þegar FH heimsækir Selfoss í 5. umferð Olís-deildar karla klukkan 19:30. Síðan tekur Evrópudeildin aftur við. FH fær franska liðið Limoges í heimsókn í Kaplakrika á þriðjudagskvöld í 2. umferð riðlakeppninnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top