Theodór Ingi Pálmason, eða Ponzan eins og hann er jafnan kallaður, segir félagaskipti sín yfir í Gróttu árið 2019 hafa verið ákveðinn lágpunkt á handboltaferlinum, þótt hann geti um leið státað sig af því að hafa farið upp um deild með félaginu. Theodór Ingi var spurður út í félagaskiptin í hlaðvarpsþættinum Dr. Football og viðurkenndi að þau hefðu verið lágpunkturinn á ferlinum. „Já, ég myndi nú segja það. Ég var í raun hættur vegna meiðsla en Arnar Daði, vinur minn, var nýtekinn við Gróttu og þetta var svona smá „buzz“, þannig að þetta liti út fyrir að það væri eitthvað í gangi á markaðnum til að aðrir myndu koma,“ sagði Theodór. Theodór samdi við Gróttu í maí 2019, aðeins nokkrum dögum eftir að Arnar Daði Arnarsson tók við þjálfun liðsins. Hann hafði síðast leikið með Fjölni tímabilið 2017/18 en verið frá keppni veturinn á undan. Endurkoman varð þó afar skammvinn. „Ég náði að spila í fimm mínútur og síðan lagði ég endanlega skóna á hilluna eftir það. En ég tel þetta samt sem „promotion“ því Grótta fór upp um deild þetta tímabil,“ sagði Theodór. Grótta var í þriðja sæti Grill 66-deildarinnar þegar keppni var stöðvuð vegna kórónuveirufaraldursins vorið 2020. Þar sem ungmennalið fyrir ofan Gróttu gat ekki farið upp um deild fékk Grótta sæti í Olís-deildinni þegar HSÍ ákvað að ekkert umspil færi fram. Theodór, sem er uppalinn hjá FH, átti nokkuð sérstakan feril þar sem hann hætti og sneri aftur oftar en einu sinni. Hann lék meðal annars með ÍH tímabilið 2013/14 og frammistaða hans þar varð til þess að hann samdi aftur við uppeldisfélagið FH sumarið 2014. Síðar lék hann með KR og Fjölni áður en síðasta endurkoman kom hjá Gróttu. Hann samdi við KR fyrir tímabilið 2016/17 og lék meðal annars með liðinu í umspili um sæti í Olís-deildinni vorið 2017 en eftir að KR vann sér sæti í Olís-deildinni var meistaraflokkslið KR lagt niður hjá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.