Logi Geirsson sparar ekki stóru orðin um Narfa
Sævar Jónasson

Brynjar Narfi Arndal heldur áfram að vekja athygli fyrir framgöngu sína með FH og átti hann mjög góðan leik með Hafnarfjarðarliðinu í Evrópuleik gegn Bidasoa á Spáni í gærkvöldi.

Hinn 16 ára gamli Narfi skoraði átta mörk í naumu 39–37 tapi FH og lét nokkrum sinnum til sín taka með tilþrifum sem vöktu verðskuldaða athygli. Eitt marka hans var meðal annars valið næst besta mark kvöldsins af álitsgjöfum EHF.

Einn þeirra sem fer ekki varhluta með hrifningunni sinni af Narfa, er FH-ingurinn Logi Geirsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands. Logi birti myndskeið af þessu magnaða marki á Instagram og skrifaði einfaldlega:

„Besti 16 ára leikmaður allra tíma.“

Stór orð, en hæfileikar Narfa hafa lengi verið augljósir þeim sem fylgst hafa með íslenskum handbolta. Hann varð yngsti leikmaður í sögu efstu deildar karla einungis 14 ára gamall og varð síðar yngsti markaskorari deildarinnar.

Spænskir fjölmiðlar höfðu einnig augun á Narfa fyrir leikinn gegn Bidasoa og sögðu hann þegar vera undir smásjá stórliða í Evrópu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top