Marel sneri aftur eftir krossbandsslitin
Kristinn Steinn Traustason

Marel Baldvinsson sneri aftur á handboltavöllinn með Fram í gærkvöldi eftir rúmlega árs fjarveru vegna alvarlegra hnémeiðsla eftir að hann sleit krossband.

Marel kom við sögu og skoraði þrjú mörk þegar Fram tók á móti Aftureldingu í 5. umferð Olís-deildar karla. Framarar steinlágu í leiknum 24-42.

Marel meiddist í leik Fram og Þórs í Olís-deildinni 13. september í fyrra. Fram vann leikinn 36:27. Tíu dögum síðar staðfesti Einar Jónsson, þjálfari Fram, að Marel væri með rifu í krossbandi og þyrfti að gangast undir aðgerð. Ljóst var strax að tímabilið væri búið hjá honum. Einar lýsti meiðslunum á sínum tíma sem „hrikalegu áfalli“ enda Marel ætlað stórt hlutverk hjá Fram.

Marel hafði verið einn af efnilegustu leikmönnum Fram og lék meðal annars stórt hlutverk þegar félagið varð Íslands- og bikarmeistari tímabilið 2024/2025. Nú, rúmu ári eftir meiðslin, er Marel loksins kominn aftur á völlinn og lét strax að sér kveða með þremur mörkum í sínum fyrsta leik eftir langa fjarveru.

Framarar hefðu þó eflaust kosið að endurkoman hefði átt sér stað við betri kringumstæður. Afturelding vann stórsigur, 42:24, og Fram hefur nú tapað þremur leikjum í röð í Olís-deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top