Atvik úr leik Fram og Aftureldingar í 5. umferð Olís-deildar karla var tekið fyrir í dagskrárliðnum „Skita umferðarinnar" í boði Skolphreinsunar Ásgeirs í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Atvikið átti sér stað í fyrri hálfleik þegar Hákon Daði Styrmisson, leikmaður Aftureldingar, átti skot að marki Fram. Stefán Freyr Jónsson, markvörður Fram, féll í gólfið í kjölfarið og hélt um andlitið á sér. Mikil óánægja var á varamannabekk Fram og fékk Einar Jónsson, þjálfari liðsins, gult spjald, ekki það fyrsta á ferlinum. Dómarar leiksins, Árni Snær og Þorvar Bjarmi, töldu hins vegar ekki ástæðu til að refsa Hákoni og leikurinn hélt áfram. Framarar nýttu sér það og skoruðu úr hraðarupphlaup í kjölfarið. Það dugði þó ekki til, til að róa varamannabekk Fram sem var allt annað en sáttur við ákvörðun dómarana að refsa ekki Hákoni fyrir skotið. Atvikið var skoðað sérstaklega í uppgjörsþætti Handkastsins og þar þótti myndbandið sýna að boltinn hefði ekki farið í andlit Stefáns Freys. „Mögulega er það eðlilegt að Einar Jónsson hafi verið brjálaður ef hann sá þetta ekki og sér bara markmanninn sinn liggja. En Stefán Freyr, við erum með myndband af þessu, sem fyrrum markvörður og þessi regla á að vera til að hjálpa markvörðum þá verða menn að vera meiri fucking menn og ekki blekkja þegar þú færð skot í upphandlegginn.“ Gagnrýninni lauk með skýrum skilaboðum til markvarðarins. „Skamm á þig og gerðu betur. Stefán Freyr, þú færð heimsókn frá Skolphreinsun Ásgeirs á næstu dögum," sagði Stymmi klippari. Arnar Daði Arnarsson hrósaði dómurum leiksins fyrir að hafa ekki stöðvað leikinn og refsað Hákoni. „Ég verð að hrósa Árna og Þorvari, dómurum leiksins, fyrir þessa ákvörðun. Þetta er ekki auðveld ákvörðun fyrir dómara að láta leikinn halda áfram þegar leikmaður heldur um andlitið á sér. Þú þarft að vera mjög sannfærður,“ sagði Arnar Daði. Þá greip Stymmi klippari inn í og spurði: „Af hverju ráku dómararnir ekki Stefán Frey út af fyrir leikaraskap?“ Fram tapaði leiknum gegn Aftureldingu, 24-42. Myndskeiðið af atvikinu má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.