Íslenskar handboltakonur voru á ferðinni í Evrópukeppnum í dag. Elín Rósa Magnúsdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir komust báðar á blað með Blomberg-Lippe í Meistaradeild Evrópu á meðan Elín Klara Þorkelsdóttir fór á kostum með Sävehof í Evrópudeildinni. Blomberg-Lippe tók á móti Podravka í B-riðli Meistaradeildar Evrópu en gestirnir frá Króatíu höfðu betur, 33–31, eftir spennandi viðureign. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Blomberg-Lippe og Díana Dögg Magnúsdóttir bætti einu marki við. Nieke Kühne var markahæst heimakvenna með ellefu mörk. Blomberg-Lippe hefur þar með tapað öllum fjórum leikjum sínum í Meistaradeildinni og er án stiga á botni B-riðils. Podravka náði hins vegar í sín fyrstu stig með sigrinum og er með tvö stig. Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórleik fyrir Sävehof sem vann 31–27 útisigur á Hypo Niederösterreich í fyrri leik liðanna í Evrópudeildinni. Elín Klara var markahæst Sävehof með átta mörk og lék lykilhlutverk í sigrinum. Sænska liðið fer því með fjögurra marka forskot inn í seinni leik liðanna sem fer fram eftir viku. Benfica tók stórt skref í átt að næstu umferð Evrópudeildarinnar með öruggum 31–16 sigri á Zrinski. Lovísa Thompson skoraði tvö mörk fyrir Benfica sem fer með 15 marka forskot inn í seinni leikinn eftir viku og stendur því afar vel að vígi í einvíginu. Dana Björg Guðmundsdóttir og liðsfélagar hennar í Larvik töpuðu naumlega, 28–27, á útivelli gegn Nice í fyrri leik liðanna í Evrópudeildinni. Tölfræði úr leiknum lá ekki fyrir og því ekki vitað hvort Dana Björg hafi komist á blað eða ekki. Aðeins eitt mark skilur liðin að fyrir seinni viðureignina og því enn allt opið í einvíginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.