Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði þrjú mörk í sínum fyrsta leik með Hannover-Burgdorf í þýsku Bundesligunni um helgina þegar liðið tapaði fyrir Melsungen á útivelli, 28–22. Reynir Þór Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir heimamenn. Sigvaldi gekk til liðs við Hannover frá Kolstad í sumar en hefur glímt við þrálát bakmeiðsli frá því í lok maí. Hann missti af stórum hluta undirbúningstímabilsins og fyrstu sex deildarleikjum Hannover. Í samtali við Handkastið í byrjun september greindi Sigvaldi frá því að um taugavandamál í bakinu væri að ræða sem hefði haft töluverð áhrif á vinstri fótlegginn. „Ég er búinn að vera með eitthvað vesen í bakinu, eitthvað tengt taugunum. Ég missti mikinn kraft í vinstri löpp en er að verða klár,“ sagði Sigvaldi þá við Handkastið. Tæpir fjórir mánuðir liðu frá meiðslunum þar til Sigvaldi lék fyrstu mínúturnar með Hannover í bikarleik gegn Balingen-Weilstetten 23. september. Hann kom síðan ekkert við sögu gegn Göppingen í deildinni en þreytti frumraun sína í Bundesligunni um helgina. Sigvaldi skoraði öll þrjú mörkin í síðari hálfleik, þar af tvö á lokamínútunum. Þau voru hans fyrstu mörk fyrir félagið en dugðu ekki til að koma í veg fyrir sex marka tap.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.