Hafdís og Britney frá vegna meiðsla – Óvíst hvenær þær snúa aftur
HSÍ / Múmmi Lú

Valur var án Hafdísar Renötudóttur og Britney Cots þegar liðið vann góðan útisigur gegn KA/Þór í 4. umferð Olís-deildar kvenna á föstudagskvöld.

Báðar glíma við meiðsli og er óvíst hvenær þær verða tilbúnar til þess að snúa aftur á völlinn.

„Hafdís er að glíma við meiðsli í baki og gat þar af leiðandi ekki tekið þátt í leiknum við KA/Þór á föstudaginn. Tíminn verður að leiða það í ljós hvenær hún kemst aftur inn á völlinn en þangað til er hún í góðum höndum hjá sjúkraþjálfara,“ sagði Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, í samtali við Handkastið.

Britney meiddist aftan í læri í leik Vals gegn Haukum.

,,Þar af leiðandi gat hún ekki tekið þátt fyrir norðan. Við þurfum að sjá hvernig það þróast og hvenær hún kemst aftur inn á völlinn.“

Þrátt fyrir fjarveru þeirra beggja tókst Val að sækja góðan sigur norður.

„Við byrjuðum leikinn vel og mættum stemmdar til leiks. Þetta var erfiður leikur að spila en mér fannst við stýra leiknum vel og þetta var góður sigur á erfiðum útivelli,“ sagði Anton.

Ísabella Schöbel Björnsdóttir, sem gekk á dögunum til liðs við Val frá ÍR, var komin inn í leikmannahóp liðsins eftir aðeins nokkrar æfingar með nýjum liðsfélögum. Anton segir hana hafa komið sterka inn í hópinn.

„Ísabella er komin inn í þetta hjá okkur og hefur staðið sig vel. Hún tók fyrstu æfinguna á mánudaginn síðasta með liðinu og hefur komið sterk inn í þetta á stuttum tíma. Hún er góður markmaður sem mun án efa eflast meira eftir því sem líður á tímabilið.“

Valur heimsækir Fram í 5.umferð Olís-deildar kvenna næstkomandi laugardag í Úlfarsárdalnum klukkan 14:30. Fram er með fullt hús stiga ásamt ÍR og Haukum á toppi deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top