Besta handboltakona heims yfirgefur Esbjerg
Alex Nicodim /AFP

Norska stórstjarnan Henny Reistad yfirgefur danska stórliðið Team Esbjerg að loknu yfirstandandi tímabili og gengur í raðir franska stórliðsins Brest Bretagne.

Brest staðfesti félagaskiptin á föstudaginn en Reistad hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið og mun því leika í Frakklandi frá sumrinu 2027 til 2030.

Um er að ræða ein allra stærstu félagaskipti síðari ára í kvennahandboltanum enda hefur hin 27 ára gamla Reistad verið kjörin besta handboltakona heims af Alþjóða handknattleikssambandinu, IHF, þrjú ár í röð, 2023, 2024 og 2025. Hún er fyrsta konan til þess að vinna þau verðlaun þrjú ár í röð.

Reistad hefur leikið með Esbjerg frá árinu 2021 þegar hún kom til Danmerkur frá Vipers Kristiansand. Hún hafði þá nýverið orðið Evrópumeistari með Vipers.

Á sex árum sínum hjá Esbjerg hefur Reistad verið einn allra besti leikmaður heims og lykilmaður í uppgangi danska félagsins. Hún hefur meðal annars orðið þrisvar sinnum danskur meistari með liðinu og farið með Esbjerg á Final Four-úrslitahelgi Meistaradeildarinnar fjögur ár í röð.

Reistad hefur einnig unnið nánast allt sem hægt er að vinna með norska landsliðinu. Hún er Ólympíumeistari frá 2024, tvöfaldur heimsmeistari og þrefaldur Evrópumeistari. Reistad var bæði valin besti leikmaður og varð markahæst á heimsmeistaramótinu árið 2025 þegar Noregur varð heimsmeistari.

Forráðamenn Brest fara ekkert í felur með metnaðinn á bak við félagaskiptin. Gérard Le Saint, forseti félagsins, segir komu Reistad marka nýjan kafla í sögu Brest en stóra markmið félagsins sé að vinna Meistaradeild Evrópu.

Tomas Axnér, þjálfari Esbjerg, segir félagið fyrst og fremst þakklátt fyrir að hafa fengið að njóta krafta Reistad undanfarin ár. Hún hafi ekki aðeins þróast sem leikmaður heldur einnig orðið mikilvægur leiðtogi innan liðsins.

Brest hefur verið að festa sig í sessi á meðal sterkustu liða Evrópu og koma Reistad er skýr yfirlýsing um hvert franska félagið stefnir. Takist Brest að vinna Meistaradeildina með Reistad innanborðs yrði það fyrsti Evrópumeistaratitill félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top