Selfoss er eina liðið sem enn bíður eftir sínum fyrsta sigri í Olís-deild karla eftir fyrstu fimm umferðir tímabilsins. Staða liðsins og þá sérstaklega varnarleikurinn var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Selfyssingar töpuðu 36-31 gegn FH á heimavelli um helgina og eru enn án sigurs eftir fimm umferðir. „Eins og ég hef sagt í fyrri þáttum þá hafði ég áhyggjur af Selfyssingum og að þetta gæti orðið aðeins þyngra þegar þeir þurfa að bíða lengur eftir fyrsta sigrinum. Þeir voru massívir og gerðu fáa tæknifeila í fyrra en þeir fá 42 mörk á sig í síðasta leik gegn Aftureldingu og 36 mörk gegn FH. Mér finnst Carlos Martin boltinn aðeins að hverfa,“ sagði Stymmi klippari í uppgjörsþættinum. Selfoss hefur því fengið á sig samtals 78 mörk í síðustu tveimur leikjum. Arnar Daði Arnarsson tók undir að varnarleikurinn væri helsta áhyggjuefnið. „Örn Þrastarson og Einar Sverrisson þurfa að bera virðingu fyrir því að þeir þurfa að laga varnarleikinn því ekki geta þeir kennt Alexander Hrafnkelssyni, markverði, um því hann átti góðan leik gegn FH.“ Næstu vikur gætu reynst afar mikilvægar fyrir Selfyssinga. Liðið mætir Haukum í næstu umferð áður en leikir gegn Víkingi og HK taka við. „Þarna gæti Selfoss náð í mikilvæg fjögur stig,“ sagði Kristinn Björgúlfsson. Arnar Daði sá hins vegar hina hliðina á peningnum. „Já eða bara vera í miklum vandræðum. Mér finnst það vera líklegra ef maður ætti að vera að spá í spilin,“ bætti Arnar Daði við.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.