Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, segir þýska landsliðið þurfa að læra að njóta þeirrar pressu sem fylgir miklum væntingum fyrir HM á heimavelli. Hann varar þó við því að Þjóðverjar séu þegar farnir að tala um mögulegan úrslitaleik gegn Danmörku. Hundrað dagar eru þar til flautað verður til leiks á heimsmeistaramótinu og væntingarnar til þýska landsliðsins eru miklar eftir silfurverðlaun á bæði Ólympíuleikum og Evrópumótinu í janúar. Alfreð hefur hins vegar litlar áhyggjur af pressunni sem fylgir væntingunum. Hann telur þvert á móti að leikmenn eigi að læra að njóta hennar. „Þetta er í raun eitthvað sem ég hef sagt í mörg ár, jafnvel áratugi. Maður þarf að læra að elska þessa pressu. Pressan er líka staðfesting á eigin frammistöðu og gæðum. Ef maður finnur ekki fyrir þessari pressu er maður ekki kominn nógu langt og mun aldrei berjast um verðlaun. Þegar maður stendur svo einhvern tímann í úrslitaleik verður maður líka að geta notið þess,“ sagði Alfreð í samtali við handball-world. Þjóðverjar stefna hátt á heimavelli en Alfreð vill ekki að menn fari fram úr sér. Sérstaklega hefur umræðan um mögulegan úrslitaleik gegn heims- og Evrópumeisturum Danmerkur farið í taugarnar á honum. „Auðvitað er stóra markmiðið okkar aftur að komast í undanúrslit. En það er hættulegt þegar ég er stöðugt spurður: „Vinnið þið Dani í úrslitaleiknum í þetta skiptið?“ Ekki einu sinni Danir eru öruggir með að komast í úrslitaleikinn.“ Alfreð bendir á að mörg öflug landslið verði í baráttunni um verðlaun og því sé ekkert sjálfgefið þegar komið er á stórmót. Þýskaland ætlar sér engu að síður stóra hluti á heimavelli og ljóst er að pressan verður mikil á Alfreð og hans mönnum þegar heimsmeistaramótið hefst.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.