Valur mætir slóvenska liðinu Slovan á útivelli í 2. umferð Evrópudeildarinnar í dag. Flautað verður til leiks klukkan 16:45 að íslenskum tíma. Leikur Slovan og Vals er sýndur í beinni á Livey. Klukkan 18:45 verður FH í eldlínunni þegar Hafnarfjarðarliðið fær franska liðið Limoges í heimsókn í Kaplakrika. Sá leikur er einnig sýndur í beinni á Livey. Valsmenn hófu riðlakeppnina af krafti og unnu danska liðið Mors-Thy í fyrstu umferð. Slovan er sömuleiðis með tvö stig eftir fimm marka sigur á Tatabánya í fyrstu umferðinni. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, býst við erfiðu verkefni gegn reynslumiklu liði Slovan. „Við undirbúum okkur fyrir erfiðan leik á erfiðum útivelli. Þetta er reynslumikið lið með níu landsliðsmenn og við erum að fara að mæta hörkuliði. Þeir eru með frábæra miðjumenn, tvær þungar og góðar skyttur og stóra og þunga línumenn,“ sagði Ágúst Þór í samtali við Handkastið. Hann segir lykilatriði að Valsmenn nái að halda þétt utan um sóknarleik heimamanna. „Við þurfum að vera mjög þéttir varnarlega og ná að mæta skyttunum þeirra en um leið að hafa alla vinnu í kringum línumennina góða.“ Ágúst sér þó ákveðna veikleika hjá Slovan sem Valur ætlar að reyna að nýta sér, ekki síst í hraðaupphlaupum. „Að sama skapi ætlum við að keyra svolítið á þá. Við eigum að geta keyrt vel á þá. Þeir eru frekar þungir og hægir til baka og við munum reyna, sérstaklega framan af leik, að keyra á þá. Við þurfum síðan að fara vel með boltann sóknarlega, vera agaðir og skila okkur vel til baka.“ Valsmenn eru ferðuðust til Slóveníu á sunnudaginn og segir Ágúst stemninguna í hópnum góða fyrir leikinn. „Andinn er góður í hópnum og aðstæður frábærar hér hjá okkur. Við erum spenntir að takast á við þetta verkefni og það er mikil tilhlökkun í hópnum.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.