Arnar Pétursson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur valið 18 leikmenn sem koma saman í Póllandi mánudaginn 19. október. Liðið leikur þar tvo vináttulandsleiki gegn heimakonum, fimmtudaginn 22. október og laugardaginn 24. október. Er þetta síðasta verkefni hópsins áður en liðið kemur saman í lok nóvember til lokaundirbúnings fyrir Evrópumótið sem hefst í desember. ,,Leikirnir gegn Póllandi eru því kærkomið tækifæri til að máta þær áherslur sem farið var yfir í æfingavikunni hér heima í september gegn sterkum andstæðingi," segir í tilkynningunni frá HSÍ. Athygli vekur að Jóhanna Margrét Sigurðardóttir leikmaður Hauka fær ekki kallið frá Arnari Péturssyni þrátt fyrir ótrúlega frammistöðu í Olís-deild kvenna til þessa. Jóhanna Margrét hefur verið valin í Cell tech lið umferðarinnar hér á Handkastinu eftir allar fjórar umferðirnar en hún er langmarkahæsti leikmaður Olís-deildarinnar. Hópurinn er eftirfarandi Markmenn Hafdís Renötudóttir, Valur (80/5) Sara Sif Helgadóttir, Haukar (25/0) Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (1/0) Aðrir leikmenn Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Thuringer HC (16/11) Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (75/104) Elín Klara Þorkelsdóttir, Savehof (37/145) Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg Lippe (42/90) Elísa Elíasdóttir, Valur (33/33) Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (24/39) Katrín Tinna Jensdóttir, HH Elite (37/42) Lilja Ágústsdóttir, Sachsen Zwickau (27/19) Lovísa Thompson, Benfica (41/75) Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (11/1) Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (14/16) Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (49/204) Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (7/12) Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (7/2) Thea Imani Sturludóttir, SCM Craiova (98/224)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.