Sýndum okkar rétta andlit í seinni hálfleik
HSÍ / Mummi Lú

Valur þurfti að sætta sig við tap gegn Slovan í Slóveníu í 2. umferð Evrópudeildar karla í kvöld. Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, var ósáttur við frammistöðuna í fyrri hálfleik en ánægður með viðbrögð sinna manna eftir hlé.

Leikið var í Hala Tivoli í Ljubljana og lauk leiknum með 34-29 sigri heimamanna. Slovan náði góðri forystu strax í fyrri hálfleik og leiddu Slóvenarnir með átta mörkum í hálfleik, 20-12.

„Byrjunin hjá okkur og fyrri hálfleikurinn var alls ekki nægilega góður. Það var skrekkur í okkur og við vorum ólíkir sjálfum okkur. Varnarlega vorum við alls ekki góðir, vorum að tapa mikið maður á mann og í miklum vandræðum með línumennina þeirra sem eru þungir og sterkir,“ sagði Ágúst Þór í samtali við Handkastið eftir leik. Valsmenn áttu einnig í vandræðum sóknarlega fyrir hlé.

Valsmenn töpuðu í Slóveníu

„Sóknarlega vorum við staðir og vorum að mæta illa á boltann. Við vorum langt undir okkar getu í fyrri hálfleik og vorum komnir í erfiða stöðu í hálfleik.“

Frammistaðan breyttist hins vegar til muna eftir hlé og Ágúst var ánægður með hvernig liðið svaraði fyrir sig.

„Í seinni hálfleik sýndu strákarnir sitt rétta andlit. Mér fannst við varnarlega mun betri og Bjöggi var mjög góður fyrir aftan. Í kjölfarið náðum við að keyra aðeins á þá. Sóknarlega stigu fleiri leikmenn upp og við leystum sóknarleikinn ágætlega.“

Ágúst segir leikinn mikilvæga reynslu fyrir ungt lið Vals og var sérstaklega ánægður með að leikmenn hans lögðu ekki árar í bát þrátt fyrir erfiða stöðu.

„Við vissum að þetta væri sterkt lið með mikla reynslu en við skoðum þetta og reynum að draga lærdóm af þessum leik. Þetta er mikil og góð reynsla fyrir strákana. Ég var ánægður með að menn gáfust ekki upp og sýndu mikinn karakter. Í rauninni hefðum við getað komist enn nær þeim en vorum óheppnir með nokkur skot úr góðum færum.“

Valsmenn fá lítinn tíma til að velta tapinu fyrir sér því næsta verkefni er bikarleikur gegn Selfossi á föstudaginn.

„Nú tekur við næsta verkefni sem er gegn Selfossi í bikarnum á föstudaginn og við ætlum að mæta vel einbeittir og tilbúnir í þann leik.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top