Aron Pálmarsson, þjálfari FH, segir liðið geta dregið mikinn lærdóm af tapinu gegn Limoges í Evrópudeildinni í Kaplakrika í gærkvöldi. Hann telur FH hafa borið of mikla virðingu fyrir franska liðinu í fyrri hálfleik. Lokatölur í Kaplakrika í gær, 33-46 fyrir Limoges en staðan í hálfleik var 16-27 eftir að franska liðið hafi mest náð tólf marka forystu í fyrri hálfleik. „Við áttum í miklum erfiðleikum í fyrri hálfleik og náðum lítið sem ekkert að klukka þá,“ sagði Aron í viðtali við Vísi eftir leikinn. „Þetta er öflugt lið sem við vorum að mæta og þeir voru líkamlega sterkari en við, teknískari og taktískt klókari. Við getum dregið mikinn lærdóm af þessum leik og það er gott fyrir okkur að sjá hvað við þurfum að bæta svart á hvítu.“ Hann nefndi sóknarleik Jóns Bjarna og markvörslu Jóns Þórarins meðal þess sem hefði verið jákvætt, en sagðist einnig þurfa að skoða eigin þátt í undirbúningi liðsins. „Nú förum við svo að greina það hvað betur mátti fara og stefnum að því að bæta okkur dag frá degi. Ég þarf líka að líta í eigin barm og fara yfir það sjálfur hvað betur hefði mátt fara hjá mér í undirbúningnum.“ FH verður aftur í eldlínunni á föstudagskvöldið þegar Fram mætir í Kaplakrikann, í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins. Sá leikur hefst klukkan 19:30 og verður sýndur í beinni á RÚV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.