Tveir leikmenn KA/Þórs í færeyska landsliðinu
Egill Bjarni Friðjónsson

Joan Rúnadóttir Johannesen og Agatha Kjærbæk Djurhuus leikmenn KA/Þórs, hafa verið valdar í færeyska landsliðið sem kemur saman síðar í þessum mánuði og leikur tvo undirbúningsleiki gegn Austurríki.

Færeyska landsliðið kemur saman 18. október og æfir í Færeyjum áður en haldið verður til Austurríkis 20. október. Um er að ræða undirbúning liðsins fyrir Evrópumótið sem fram fer í desember.

Færeyingar mæta Austurríki í tveimur vináttulandsleikjum í komandi verkefni.

Færeyski landsliðshópurinn:

Markverðir:
Rakul Wardum – Skanderborg Håndbold
Annika Fríðheim Petersen – Gniezno

Bakverðir:
Silja Geirsdóttir Eystberg – Ajax København
Jana Mittún – Viborg HK
Maria Pálsdóttir Nólsoy – København Håndbold
Marita Mortensen – Nykøbing Falster Håndboldklub
Fríða Nolsøe Olsen – BK Ydun
Ró Reginsdóttir – Neistin
Rakul Borgarlíð Joensen – VÍF

Hornamenn:
Brynhild Pálsdóttir – BK Ydun
Joan Rúnadóttir Johannesen – KA/Þór
Rannvá Olsen – Ejstrup/Hærvejen
Christina Turiðardóttir Arge – Hadsten Håndbold

Línumenn:
Pernille Brandenborg – CSM Bucharest
Vár Bentsdóttir Zachariasen – Ajax København
Agatha Kjærbæk Djurhuus – KA/Þór

Færeyingar eiga síðan tvo leiki í Golden League í Noregi í lok nóvember, gegn Noregi 26. nóvember og Danmörku 28. nóvember. Fyrsti leikur Færeyja á EM verður gegn Úkraínu 5. desember klukkan 19:30.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top