Aganefnd HSÍ telur að brot Mareks Lesansky, leikmanns Víðis, geti verðskuldað lengra bann en einn leik eftir viðureign Víðis og Harðar í Grill 66-deild karla um síðustu helgi. Máli hans hefur verið frestað um sólarhring. Lesansky fékk útilokun með skýrslu vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar í leik Víðis og Harðar síðastliðinn laugardag. Dómarar leiksins mátu brotið þannig að það félli undir reglu 8:10 a). Aganefnd telur að brotið geti verðskuldað lengra bann en einn leik og hefur því tilkynnt skrifstofu HSÍ um málið. Víði gefst sex klukkustunda frestur til að skila inn athugasemdum áður en endanleg niðurstaða liggur fyrir. Málinu hefur verið frestað um sólarhring. Petr Hlavenka, liðsfélagi Lesansky, fékk einnig útilokun með skýrslu í sama leik, sem og Pétur Þór Jónsson, leikmaður Harðar. Aganefnd ákvað að aðhafast ekki frekar vegna þeirra mála. Þá var Róbert Snær Örvarsson, leikmaður ÍR, einnig tekinn fyrir vegna útilokunar með skýrslu í leik Vals 2 og ÍR. Ekki verður heldur aðhafst frekar í hans máli. Stefanía Ósk Engilbertsdóttir, leikmaður Fjölnis, var hins vegar úrskurðuð í eins leiks bann vegna útilokunar með skýrslu í leik FH og Fjölnis í Grill 66-deild kvenna. Stefanía fékk útilokun vegna grófrar ódrengilegrar hegðunar og mátu dómarar brotið þannig að það félli undir reglu 8:10 a). Leikbann Stefaníu tekur gildi í hádeginu í dag og missir hún því af leik Fjölnis og HK 2 í Grill66-deildinni sem fer fram annað kvöld klukkan 19:00 í Egilshöllinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.