Þrjú Íslendingalið áttu leik í kvöld á Norðurlöndunum en sænsku meistararnir í Sävehof töpuðu óvænt á heimavelli fyrir Skara á meðan Horsens fengu stóran skell í dönsku deildinni. Elín Klara Þorkelsdóttir skoraði sex mörk úr átta skotum og gaf fjórar stoðsendingar fyrir heimakonur en það dugði skammt því gestirnir frá Skara unnu frábæran sigur á meisturunum í Sävehof, 30-32. Í dönsku úrvalsdeildinni tóku Team Esbjerg á móti Horsens og gestirnir fengu stóran skell og áttu aldrei séns í leiknum, lokatölur 37-23 fyrir heimakonur. Katrín Tinna Jensdóttir skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir Horsens. Að lokum unnu Larvik stórsigur á Gjerpen, 35-25 í norsku úrvalsdeildinni en Dana Björg Guðmundsdóttir var ekki í leikmannahóp Larvik að þessu sinni. Góð byrjun Larvik heldur áfram en þær eru með fullt hús stiga eftir sex umferðir og sitja í toppsæti deildarinnar. Úrslit kvöldsins: Sävehof 30-32 Skara Team Esbjerg 37-23 Horsens Larvik 35-25 Gjerpen

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.