16-liða úrslitum Powerade-bikars karla lýkur ekki fyrr en á laugardaginn þrátt fyrir að hinir sjö leikir umferðarinnar hafi farið fram í síðustu viku. Þórsarar ætla að nýta ferð sína til Vestmannaeyja og spila þar tvo leiki á tveimur dögum. Þór mætir ÍBV í sjöttu umferð Olís-deildarinnar á föstudaginn klukkan 18:00. Innan við sólarhring síðar, klukkan 17:30 á laugardaginn, mætir liðið ÍBV B í lokaleik 16-liða úrslita Powerade-bikarsins. Ákvörðunin var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. „Þetta er frekar óvanalegt að lið í meistaraflokki skuli spila tvo leiki á einum sólarhring,“ sagði Arnar Daði Arnarsson, Sérfræðingurinn. „Þetta er sérstakt,“ sagði Ásgeir Jónsson áður en Einar Ingi Hrafnsson rifjaði upp sambærilegar ferðir úr yngri flokkunum. „Þetta er svipað og við Ásgeir gerðum á sínum tíma í öðrum flokki þegar við fórum til Eyja og spiluðum tvo leiki við ÍBV.“ Ásgeir sagðist skilja hugsunina á bak við ákvörðunina en taldi Þórsara taka áhættu með svo þéttu leikjaálagi. „Það fer eftir því hvernig þessir leikir fara. Ég skil alveg pælinguna að það sé verið að spara einhvern kostnað og nýta ferðina en þú ert að taka áhættu á sama tíma, ekki bara varðandi úrslit heldur líka með heilsu leikmanna. Út frá þeim vinkli þarf þetta að vera mjög vel skipulagt af hálfu Þórs. Þeir mega ekki taka of mikinn séns. Þór er þannig lið að ef einhver meiðist þá er helvíti mikið undir á hinum endanum,“ sagði Ásgeir meðal annars. Í þættinum var einnig rætt um tækifæri Þórsara í bikarkeppninni. Félagarnir töldu liðið í dauðafæri á að komast í undanúrslitahelgina, Final 4, í fyrsta sinn í sögu félagsins og bentu á að þátttaka þar gæti skilað félaginu ágætum tekjum. Fyrst þurfa Þórsarar þó að komast fram hjá ÍBV B og síðan vinna leik sinn í átta liða úrslitum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.