Opnar sig um veikindi sem hafa hrjáð hann í 15 ár
Jonathan NACKSTRAND / AFP

Sænska handboltagoðsögnin Kim Andersson hefur farið vel af stað á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Ystads IF í sænsku úrvalsdeildinni. Í viðtali við sænska miðilinn Expressen ræðir hann nýja hlutverkið en opnar sig jafnframt um langvinnan sjúkdóm sem hann hefur glímt við undanfarin 15 ár.

Andersson, sem er 44 ára gamall, tók við þjálfun Ystad í sumar af Oscar Carlén sem hélt til danska félagsins Skjern. Andersson lagði skóna á hilluna vorið 2025 og var aðstoðarþjálfari Ystad á síðasta tímabili.

Ystad vann fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu með sannfærandi hætti og var í fjórða sæti deildarinnar þegar viðtalið var tekið, þrátt fyrir að hafa leikið tveimur leikjum færra en mörg önnur lið.

„Við höfum byrjað betur en ég þorði kannski að vona,“ segir Andersson í samtali við Expressen.

Hann segist leggja mikla áherslu á hraðan og skemmtilegan handbolta þar sem ábyrgðin dreifist á marga leikmenn í stað þess að liðið treysti á fáa einstaklinga.

„Mér finnst við spila hraðan handbolta og höfum náð góðri blöndu af ungum og reynslumiklum leikmönnum. Það skemmtilegasta er hversu margir leggja sitt af mörkum. Við stöndum ekki og föllum með einum eða tveimur leikmönnum.“

Sagði fyrst nei við þjálfarastarfinu

Andersson viðurkennir að hann hafi upphaflega hafnað því að taka við aðalþjálfarastarfinu hjá Ystad.

„Fyrsta svar mitt var nei. En eftir að hafa rætt við eiginkonu mína og fengið tíma til að hugsa málið áttaði ég mig á því að ég myndi líklega sjá meira eftir því að hafa ekki tekið starfinu,“ segir Andersson.

Þrátt fyrir glæsilegan leikmannaferil, þar sem hann varð meðal annars fjórum sinnum sænskur meistari og þrisvar sinnum Evrópumeistari félagsliða, segist hann enn eiga margt ólært sem þjálfari.

„Ég er langt frá því að vera fullmótaður þjálfari. Ég er stöðugt að læra og geri líka mörg mistök. Sem betur fer sýnir liðið mér þolinmæði á meðan ég er að fóta mig.“

Hefur glímt við sjúkdóm í 15 ár

Í viðtalinu við Expressen opnar Andersson sig einnig um langvinnan sjúkdóm sem hann hefur glímt við undanfarin 15 ár og hefur meðal annars valdið því að hann missir hár á ákveðnum svæðum á höfðinu.

Sjúkdómurinn nefnist folliculitis decalvans og er sjaldgæfur, langvinnur bólgusjúkdómur í hársekkjum sem getur valdið varanlegu hárlosi. Engin endanleg lækning er þekkt við sjúkdómnum en hægt er að halda einkennum niðri með lyfjameðferð.

Andersson segir að hann hafi lengi reynt að ná tökum á sjúkdómnum án þess að það hafi tekist að fullu.

„Ég er með sjálfsofnæmissjúkdóm sem veldur því að ég missi hárið. Ég fékk hann fyrir 15 árum og hef tekið lyf í um tíu ár, en ekki náð almennilegum tökum á þessu,“ segir Andersson í samtali við Expressen. Þrátt fyrir að sjúkdómurinn hafi fylgt honum stóran hluta af leikmannaferlinum segist Andersson ekki velta útlitsbreytingunum mikið fyrir sér.

„Það er heppilegt að ég er ekki sérstaklega hégómlegur. En það er leiðinlegt þegar þetta lítur út eins og maður hafi slasast,“ segir Andersson.

Kim Andersson lék 240 landsleiki fyrir Svíþjóð á sínum ferli og var um árabil einn fremsti örvhenti leikmaður heims. Nú er hann að stíga sín fyrstu skref sem aðalþjálfari og stefnir að því að koma Ystad ofar í sænsku úrvalsdeildinni en á síðasta tímabili þegar liðið hafnaði í sjöunda sæti.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top