Fjórða umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta hófst í gærkvöldi. Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur hjá Magdeburg í góðum sigri á Kielce á meðan Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk þegar Paris Saint-Germain vann stórsigur í Slóveníu. Reynir Þór Stefánsson skoraði eitt mark fyrir Melsungen í tapi gegn Nantes. Hér að neðan má sjá hápunkta úr öllum fimm leikjum gærdagsins í Meistaradeildinni. Magdeburg 30-27 Kielce (13-14) Celje 30-41 Paris Saint-Germain (14-22) Nantes 33-25 Melsungen (17-10) Veszprém 38-28 Partizan (18-15) Wisla Plock 33-32 Vardar (16-13) Aalborg 34-33 Zagreb (19-15) Kolstad 28-36 Kriens-Luzern (13-16)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.