Wolff fær háa sekt eftir ummæli um dómarana
SVEN SIMON / AFP)

Þýski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Wolff, leikmaður Kiel, hefur verið sektaður um 2.500 evrur, jafnvirði um 360 þúsund íslenskra króna, fyrir harða gagnrýni á dómara eftir 31-31 jafntefli Kiel og Flensburg í þýsku Bundesligunni í síðasta mánuði.

Málið á rætur sínar að rekja til stórleiks liðanna 26. september þegar Kiel taldi sig hafa tryggt sér sigurinn með marki frá Julian Köster á lokasekúndum leiksins.

Dómarar leiksins skoðuðu hins vegar atvikið á myndbandi og dæmdu markið af. Leiknum lauk því með jafntefli, 31-31.

Wolff var afar ósáttur við niðurstöðuna og lét dómarana heyra það í viðtali við þýska staðarblaðið, Kieler Nachrichten eftir leikinn. Þar gagnrýndi hann bæði frammistöðu þeirra og framkomu sem hann taldi hrokafulla.

Samkvæmt þýska miðlinum Bild hefur þýska úrvalsdeildin nú sektað Wolff um 2.500 evrur vegna ummælanna. Wolff hefur jafnframt sent deildinni skriflega greinargerð þar sem hann útskýrði orð sín og viðurkenndi að hafa gengið of langt í hluta gagnrýninnar.

Sektin hafði ekki verið gerð opinber fyrr en Bild greindi frá málinu í gær.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top