Sjáðu umdeilt atvik undir lok leiks Gróttu og KA/Þórs
Egill Bjarni Friðjónsson

Umdeilt atvik undir lok leiks Gróttu og KA/Þórs í 5. umferð Olís-deildar kvenna var til umræðu í síðasta þætti Handboltahallarinnar. Leikurinn fór fram á föstudaginn í síðustu viku.

Grótta var yfir 27–25 þegar Lenka Ratvajská, leikmaður KA/Þórs, fór framhjá Katrínu Scheving og fékk hönd í andlitið. Andrea Gunnlaugsdóttir, markvörður Gróttu, varði skot hennar og í kjölfarið skoraði Grótta í tómt mark gestanna, sem léku með sjö útileikmenn í sókn.

„Það er allt í járnum, Grótta er tveimur mörkum yfir og þá gerist atvik sem við viljum sýna,“ sagði Hörður Magnússon, þáttastjórnandi.

Rakel Dögg Bragadóttir taldi að dómararnir hefðu misst af broti á Lenku á mikilvægu augnabliki.

„KA/Þór fær tækifæri til að minnka muninn í eitt mark og í fyrstu virðist þetta ekki vera neitt en við sjáum að vinstri höndin fer í andlitið á Lenku. Dómararnir hreinlega missa af þessu og þetta hefði sennilega átt að vera tveggja mínútna brottvísun.“

Þess í stað náði Grótta þriggja marka forskoti, 28–25, þegar aðeins þrjár mínútur voru eftir.

„Grótta skorar yfir allan völlinn og þarna klárast leikurinn,“ sagði Rakel Dögg.

„Þetta var risa atvik,“ bætti Hörður við.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top