Ingibjörg Gróa lokaði búrinu í 10 marka sigri Aftureldingar
Emma Elísa Jónsdóttir

Í kvöld mættust Afturelding og Valur 2 í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Mosfellsbæ.

Fyrir leikinn var Afturelding á toppi deildarinnar.

Vals liðið byrjaði aðeins betur og leiddu fyrsta korterið í leiknum. Þá tóku UMFA stelpur við sér og voru mun betri seinna korterið í fyrri hálfleik. Hálfleikstölur voru 18-13.

Aftureldingar stelpur byrjuðu svo gríðarlega vel í seinni hálfleik og juku forskotið hægt og rólega. Lokatölur urðu svo 32-22. Áfram halda stelpurnar úr Mosó á sigurbraut og verma sem fyrr toppsætið.

Hjá Aftureldingu var Katrín Helga Davíðsdóttir markahæst með 8 mörk. Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir varði 21 skot.

Hjá Val var Anna Margrét Alfreðsdóttir markahæst með 8 mörk. Iðunn Vala varði 6 skot.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top