Díana með fimm mörk í stórsigri – Thea tapaði gegn toppliðinu
FEDERICO GAMBARINI / dpa Picture-Alliance via AFP)

Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir fögnuðu öruggum sigri með Blomberg-Lippe í þýsku úrvalsdeildinni í gær á meðan Thea Imani Sturludóttir og liðsfélagar hennar í Craiova töpuðu í Rúmeníu.

Blomberg-Lippe vann ellefu marka heimasigur á nýliðum Leipzig, 32–21, eftir að hafa verið 17–11 yfir í hálfleik. Díana Dögg skoraði fimm mörk og var næstmarkahæst hjá heimaliðinu en Elín Rósa bætti við einu marki. Nieke Kühne var markahæst með sex mörk.

Blomberg-Lippe er á toppi deildarinnar með ellefu stig eftir sex leiki, stigi á undan Dortmund. Liðið er enn ósigrað í deildinni með fimm sigra og eitt jafntefli.

Í Rúmeníu skoraði Thea Imani þrjú mörk þegar Craiova tapaði fyrir ríkjandi meisturum og toppliði Gloria Bistrița á útivelli, 32–26, í sjöttu umferð deildarinnar.

Heimakonur höfðu þriggja marka forskot í hálfleik, 16–13, og unnu síðari hálfleikinn með sömu markatölu. Maja Muri var markahæst hjá Craiova með fimm mörk en Gloria Bistrița hefur unnið alla sex deildarleiki sína. Craiova tekur næst á móti Minaur Baia Mare á sunnudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top