Tournat gæti tekið við af Golla hjá Melsungen
Swen Pförtner /AFP

Franski landsliðslínumaðurinn Nicolas Tournat, leikmaður Nantes, er orðaður við þýska úrvalsdeildarliðið Melsungen. Félagið leitar að mögulegum arftaka Johannes Golla sem vill yfirgefa félagið og snúa aftur til Flensburg-Handewitt.

Þýski miðillinn Sport Bild greindi frá því í gær að Tournat væri á óskalista Melsungen. Félagið þurfi að finna öflugan línumann í stað Golla áður en það geti samþykkt að leyfa þýska landsliðsfyrirliðanum að yfirgefa félagið.

Golla gekk til liðs við Melsungen frá Flensburg í sumar og skrifaði undir samning til ársins 2031. Hann hefur hins vegar óskað eftir því að snúa aftur til Flensburg af fjölskylduástæðum.

Tournat, sem er 32 ára gamall, varð Ólympíumeistari með Frakklandi árið 2021 og Evrópumeistari árið 2024. Hann lék áður með pólska stórliðinu Kielce en sneri aftur til Nantes árið 2024.

Frakkinn er samningsbundinn Nantes til sumarsins 2030 og því þyrfti Melsungen að greiða fyrir félagaskiptin. Samkvæmt Sport Bild gæti félagið hins vegar fengið umtalsverða fjárhæð fyrir Golla ef samkomulag næst við Flensburg.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top