Hinn reynslumikli Veselin Vujović er hættur sem þjálfari karlalandsliðs Katar eftir að samningaviðræður hans við sambandið runnu út í sandinn. Vujović staðfesti tíðindin í samtali við Balkan-Handball en hann stýrði Katar nýverið til silfurverðlauna á Asíuleikunum. Þjálfarinn segir að samningstilboðið sem honum barst eftir árangurinn hafi ekki verið í samræmi við væntingar hans. Vujović vildi fá samning fram yfir heimsmeistaramótið í janúar og fram að undankeppni Ólympíuleikanna í Los Angeles. Forráðamenn Katar buðu honum hins vegar aðeins samning út heimsmeistaramótið. „Ég fékk ekki sanngjarnt tilboð eftir að hafa unnið til verðlauna á Asíuleikunum,“ sagði Vujović í samtali við Balkan-Handball. Hann benti jafnframt á að Katar væri í afar erfiðum riðli á heimsmeistaramótinu í janúar þar sem liðið mætir Svíþjóð, Noregi og Grikklandi. Vujović sagðist telja betra að hætta núna en að láta af störfum eftir þrjú töp á heimsmeistaramótinu. Þjálfarinn hefur víða komið við á löngum ferli og meðal annars stýrt landsliðum Slóveníu, Norður-Makedóníu, Írans og Katar. Hann náði eftirminnilegum árangri með Slóveníu þegar liðið vann bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu árið 2017. Ekki hefur verið tilkynnt hver tekur við landsliði Katar en heimsmeistaramótið hefst eftir tæpa þrjá mánuði.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.