Johannes Sellin verður áfram við stjórnvölinn hjá þýska handknattleiksfélaginu Erlangen en félagið hefur framlengt samning sinn við þjálfarann. Þetta kemur fram í frétt þýska miðilsins Nürnberger Nachrichten í dag. Sellin, sem er 35 ára gamall og yngsti aðalþjálfari þýsku deildarinnar, var samningsbundinn félaginu til sumarsins 2027. Nú hefur samstarfið verið framlengt til margra ára en nákvæm samningslengd kemur ekki fram í umfjöllun um samkomulagið. Sellin þekkir hvern krók og kima hjá Erlangen en hann hefur verið hjá félaginu í tæpan áratug. Fyrst sem leikmaður í sex ár áður en hann færði sig yfir í þjálfun, fyrst sem aðstoðarþjálfari og síðar aðalþjálfari. Hann gegnir nú einnig hlutverki íþróttastjóra hjá félaginu. Carsten Bissel, forseti Erlangen, lýsir yfir mikilli ánægju með áframhaldandi samstarf. Hann segir Sellin samsama sig félaginu einstaklega vel og hrósar honum fyrir vinnusemi og nákvæmni í störfum sínum. Sellin segir félagið hafa tekið mikilvæg skref undanfarin ár og vill halda áfram að byggja ofan á þá vinnu. Erlangen situr sem stendur í áttunda sæti þýsku deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.