7.umferðin í Olís-deild kvenna hefst í kvöld með tveimur leikjum þar sem ÍR tekur á móti Selfossi klukkan 19:30 í Skógarseli. Klukkan 20:00 verður síðan stórleikur í Lambhagahöllinni þegar Fram tekur á móti Haukum. Sært lið Fram tekur þar á móti toppliði Hauka sem er með fullt hús stiga en Fram hefur tapað síðustu tveimur leikjum eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á tímabilinu. Umferðin heldur síðan áfram annað kvöld með tveimur leikjum og lýkur á laugardaginn með leik Gróttu og ÍBV. 7.umferðin: Föstudagur: Laugardagur: Hér má sjá markahæstu leikmenn Olís-deildar kvenna eftir 6.umferðina:
Fimmtudagur:
19:30 ÍR - Selfoss
20:00 Fram - Haukar
18:30 Stjarnan - Valur
19:00 HK - KA/Þór
14:00 Grótta - ÍBV

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.