Einar Ingi velur sinn lokahóp fyrir EM kvenna
BO AMSTRUP / Ritzau Scanpix via AFP)

Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins tilkynnir á morgun lokahóp sinn fyrir Evrópumótið sem hefst í desember. Handkastið fékk Einar Inga Hrafnsson, sérfræðing Handkastsins um íslenska kvennalandsliðið, til að velja þann hóp sem hann telur að Arnar taki með sér á mótið.

Einar Ingi spáir því að Arnar geri tvær breytingar á hópnum frá síðasta landsliðsverkefni sem fram fór í Póllandi í síðustu viku.

Hann gerir ráð fyrir að Dana Björg Guðmundsdóttir, leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Larvik, og Andrea Jacobsen, leikmaður ÍBV, komi inn í hópinn í stað Rakelar Oddnýjar Guðmundsdóttur, leikmanns Hauka, og Ethel Gyðu Bjarnasen, markvarðar Fram.

Einar Ingi velur 18 leikmenn í sinn lokahóp, þar af tvo markverði og 16 útileikmenn.

Það er þó ákveðinn fyrirvari á markmannsstöðunni en meiðslastaða Hafdísar Renötudóttur gæti haft áhrif á endanlegt val Arnars Péturssonar.

Einar Ingi gerir ráð fyrir að Hafdís og Sara Sif Helgadóttir verði markverðir Íslands á mótinu en óvissan um meiðslastöðu Hafdísar gæti orðið til þess að Arnar ákveði að taka þrjá markverði með sér til Rúmeníu. Ef sú verður raunin telur Einar Ingi líklegt að Ethel Gyða Bjarnasen, markvörður Fram, verði þriðji markvörður íslenska liðsins á Evrópumótinu.

Það kemur því í ljós á morgun hvort Arnar velji tvo eða þrjá markverði í lokahóp sinn.

Eins hefur Dana Björg Guðmundsdóttir verið að glíma við meiðsli og var til að mynda ekki með íslenska landsliðinu í Póllandi í síðustu viku. Einar Ingi telur Dönu mikilvægan leikmann innan hópsins og að hún verði í hópnum ef hún verður orðin leikfær.

Arnar hefur skráð 35 leikmenn á svokallaðan 35 manna lista hjá Handknattleikssambandi Evrópu (EHF) og getur hann einungis valið leikmenn af þeim lista fyrir mótið.

Handknattleikssamband Íslands hefur boðað til blaðamannafundar í höfuðstöðvum Arion banka á morgun, föstudaginn 30. október, klukkan 12:15 þar sem lokahópurinn verður kynntur.

Hér að neðan má sjá EM-hóp Einar Inga Hrafnssonar.

Markverðir (2)

Hafdís Renötudóttir (Valur)

Sara Sif Helgadóttir (Haukar)

Útileikmenn (16)

Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín (Thüringer)

Andrea Jacobsen (ÍBV)

Dana Björg Guðmundsdóttir (Larvik)

Díana Dögg Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)

Elín Klara Þorkelsdóttir (IK Sävehof)

Elín Rósa Magnúsdóttir (HSG Blomberg-Lippe)

Elísa Elíasdóttir (Valur)

Katrín Anna Ásmundsdóttir (Fram)

Katrín Tinna Jensdóttir (ÍR)

Lilja Ágústsdóttir (Zwickau)

Lovísa Thompson (Benfica)

Matthildur Lilja Jónsdóttir (ÍR)

Sandra Erlingsdóttir (ÍBV)

Sara Dögg Hjaltadóttir (ÍR)

Sonja Lind Sigsteinsdóttir (Haukar)

Thea Imani Sturludóttir (Craiova)

Til vara ef þrír markverðir verða valdir:

Ethel Gyða Bjarnasen (Fram)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top