Jesper Jensen snýr aftur til Team Esbjerg
Csaba Dömötör

Danski handknattleiksþjálfarinn Jesper Jensen snýr aftur til Team Esbjerg næsta sumar eftir tveggja ára dvöl hjá ungverska stórliðinu FTC. Jensen hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska félagið sem gildir til sumarsins 2030.

Jensen, sem er 48 ára gamall, tekur við þjálfun Team Esbjerg af Svíanum Tomas Axnér sem lætur af störfum hjá félaginu eftir yfirstandandi tímabil.

Jensen þekkir vel til hjá Team Esbjerg en hann stýrði liðinu frá 2017 til 2024 og náði frábærum árangri á þeim tíma.

Undir stjórn Jensen varð Team Esbjerg fjórum sinnum danskur meistari, vann danska bikarinn þrisvar sinnum og danska Ofurbikarinn í þrjú skipti. Þá stýrði hann liðinu einnig til bronsverðlauna í Meistaradeild Evrópu.

Jensen yfirgaf Team Esbjerg árið 2024 en hefur undanfarin tvö tímabil stýrt ungverska stórliðinu FTC, Ferencváros, sem er eitt af sterkustu félagsliðum Evrópu.

Það verður þó talsvert breytt lið sem Jensen tekur við næsta sumar.

Norska stórstjarnan Henny Reistad, sem hefur verið einn allra besti leikmaður heims undanfarin ár og lykilmaður í velgengni Team Esbjerg, yfirgefur félagið eftir tímabilið og gengur til liðs við franska stórliðið Brest Bretagne.

Jensen tekur því við spennandi verkefni hjá sínu gamla félagi þar sem hann mun þurfa að byggja upp nýtt lið án Reistad, sem hefur verið ein helsta driffjöður liðsins undanfarin ár.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top