Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmaður Þýskalands og einn þekktasti handboltasérfræðingur landsins, hefur gagnrýnt Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfara Þýskalands, fyrir valið á 35 manna leikmannahópi sínum fyrir heimsmeistaramótið sem fram fer í janúar. Kretzschmar telur að tveir leikmenn hafi verið sniðgengnir þrátt fyrir frábæra frammistöðu í þýsku úrvalsdeildinni. Um er að ræða Leif Tissier, leikmann TSV Hannover-Burgdorf, og Elias Newel, leikstjórnanda Frisch Auf Göppingen. Báðir hafa verið áberandi með félagsliðum sínum á tímabilinu en hvorugur fékk sæti í 35 manna hópnum sem Alfreð tilkynnti á dögunum. 35 leikmenn berjast um sæti í HM-hópi Alfreðs Kretzschmar ræddi leikmannavalið í hlaðvarpsþættinum Kretzsche & Schmiso á Dyn þar sem hann sagðist ekki skilja hvers vegna Alfreð hefði ákveðið að skilja þá eftir heima. Hann benti sérstaklega á hversu mikil áhrif Tissier hefði haft á leik Hannover-Burgdorf eftir endurkomu sína. „Leikur Hannover hefur batnað gríðarlega síðan Leif Tissier sneri aftur. Áhrif hans á liðið eru gríðarleg. Ef ég þyrfti á reynslumiklum leikmanni að halda myndi ég treysta honum til að koma beint inn í landsliðið án nokkurs undirbúnings,“ sagði Kretzschmar. Hann var ekki síður hrifinn af frammistöðu Newel hjá Göppingen og taldi hann vera meðal bestu leikstjórnenda þýsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir. „Elias Newel er líka að eiga ótrúlegt tímabil og er einn besti leikstjórnandi deildarinnar eins og staðan er núna. Þeir hefðu báðir svo sannarlega átt skilið að vera í þessum 35 manna hópi,“ sagði Kretzschmar. Það sem vekur sérstaklega athygli Kretzschmar er að Alfreð hafi meðal annars valið Luca Witzke í hópinn. Witzke hefur glímt við meiðsli og verið lengi frá keppni en er nú kominn aftur á völlinn. Kretzschmar telur að frammistaða Tissier og Newel á undanförnum vikum og mánuðum réttlæti frekar sæti þeirra í hópnum. Þýskaland verður á heimavelli á HM í janúar og væntingarnar til liðsins eru miklar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.