Slóvenski landsliðsmaðurinn Aleks Vlah hefur vísað á bug fregnum þess efnis að hann sé á leið frá pólska stórliðinu Industria Kielce. Vlah hefur verið orðaður við félög í Rúmeníu og Frakklandi að undanförnu en segist ánægður í Póllandi og ætlar sér ekki að yfirgefa félagið. Fjárhagsstaða Kielce hefur verið til umræðu í evrópskum handbolta að undanförnu og hafa ýmsar sögusagnir farið af stað um framtíð leikmanna félagsins. Slóvenski handboltamiðillinn Handballia greindi meðal annars frá því að Vlah gæti verið á leið frá Kielce og nefndi rúmenska stórliðið Dinamo Búkarest og félög í Frakklandi sem mögulega áfangastaði. Vlah, sem gekk til liðs við Kielce frá danska stórliðinu Aalborg, hefur hins vegar sjálfur stigið fram og gert lítið úr þessum fregnum. „Þetta eru bara venjulegar sögusagnir. Ég er ánægður í Kielce og er með samning til ársins 2029,“ sagði Vlah í samtali við pólska miðilinn wKielcach.info eftir leik Kielce gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu á fimmtudagskvöldið. Pólski miðillinn hefur jafnframt greint frá því að hvorki Vlah né serbneski markvörðurinn Dejan Milosavljev hafi fengið formleg tilboð frá öðrum félögum, þrátt fyrir fregnir um áhuga á þeim. Kielce hefur glímt við fjárhagslegar áskoranir og unnið að því að lækka skuldir sem hafa safnast upp á undanförnum árum. Samkvæmt upplýsingum wKielcach.info eru þó engar tafir á núverandi launagreiðslum til leikmanna félagsins. Vlah hefur verið einn af lykilmönnum Kielce og er mikilvægur hlekkur í sóknarleik liðsins. Það yrði því töluvert áfall fyrir pólska stórliðið ef hann myndi ákveða að yfirgefa félagið áður en samningur hans rennur út.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.