Valur tryggir sér sæti í næstu umferð Evrópudeildarinnar með sigri á Mors-Thy í Danmörku á morgun. Valsmenn unnu fyrri leik liðanna með ellefu marka mun á Hlíðarenda en í nýjasta þætti Handkastsins bjuggust Stymmi klippari og Einar Ingi Hrafnsson við mun erfiðari leik á útivelli. „Þeir eru búnir að vera úti núna í rúmlega viku og eru að fara að spila gegn Mors-Thy á morgun. Sigur þar og liðið er komið áfram. Valur vann fyrri leik liðanna með ellefu mörkum á heimavelli en ég hef verið að reyna að berja það inn í fólk að munurinn á heima- og útileikjum í þessari keppni er svakalegur,“ sagði Stymmi. Einar Ingi tók undir það og benti á að Mors-Thy hefði nýverið tryggt sér sæti í undanúrslitum danska bikarsins. „Þeir eru að fara í allt annan leik. Mors-Thy er líka á betri stað en þeir voru á þeim tíma,“ sagði Einar Ingi, sem taldi að Björgvin Páll Gústavsson gæti reynst Valsmönnum drjúgur í Danmörku. „Ég hef oft sagt það að Björgvin Páll er bestur þegar hann er á túrnum, erlendis er hann bestur. Það er ekkert ólíklegt að hann loki á Danina í stútfullri höll.“ Valur er með fjögur stig fyrir næstsíðustu umferð riðlakeppninnar en Mors-Thy og Tatabánya eru bæði með tvö. Valsmenn ljúka riðlakeppninni á heimavelli gegn Slovan í næstu viku. Leikur Mors-Thy og Vals hefst klukkan 19.45 á morgun og verður sýndur í beinni á Livey. Á sama tíma tekur FH á móti spænska liðinu Bidasoa Irun í Kaplakrika. FH er án stiga og á ekki lengur möguleika á að komast áfram úr sínum riðli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.