Þýski landsliðsmarkvörðurinn Andreas Wolff er sagður hafa skrifað undir fimm ára samning við þýska úrvalsdeildarfélagið VfL Gummersbach og mun ganga til liðs við félagið næsta sumar. Þetta fullyrðir handboltafréttamiðillinn RTH Handball á samfélagsmiðlum sínum í kvöld. Samkvæmt heimildum RTH Handball hefur Wolff þegar skrifað undir samning við Gummersbach sem tekur gildi sumarið 2027 og gildir til ársins 2032. Verði félagaskiptin að veruleika er um að ræða ein stærstu félagaskipti síðari ára í þýska handboltanum. Wolff, sem er 35 ára gamall, hefur um árabil verið einn besti markvörður heims og gegnt lykilhlutverki í þýska landsliðinu. Hann leikur nú með THW Kiel en hefur einnig leikið með pólska stórliðinu Industria Kielce á ferlinum. Gummersbach hefur verið að byggja upp öflugt lið á undanförnum árum og myndi koma Wolffs styrkja liðið verulega. Íslensku landsliðsmennirnir, Elliði Snær Viðarsson og Teitur Örn Einarsson er á mála hjá Gummersbach og gæti því orðið liðsfélagi Wolffs á næstu leiktíð. Þá er Garðar Ingi Sindrason að mála hjá félaginu og Orri Freyr Þorkelsson gengur í raðir félagsins næsta sumar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.