
Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 17 ára og yngri vann sinn annan leik í röð á EM sem fram fer í Svartfjallalandi og hefur tryggt sér leik gegn Noregi í leik um 17.sætið á mótinu eftir sigur á Austurríki í kvöld, 31-27. ,,Þetta var frábær leikur. Við byrjuðum ekki nægilega vel en náðum upp geggjaðri 6-0 vörn og héldum það út allan leikinn. Fengum á okkur fjögur mörk fyrsta korterið í seinni hálfleik sem gerði gæfumuninn," sagði Díana Guðjónsdóttir annar af þjálfurum liðsins í samtali við Handkastið. ,,Þetta var mikilvægur sigur upp á að fá tækifæri til að spila við Noreg aftur í lokaleiknum. Það sýnir sig ágætlega hversu sterkt þetta mót er að við erum að fara spila við Noreg um 17. sætið." Díana segir að nú taki við hvíld á morgun til að safna upp kröftum fyrir leikinn gegn Noregi. Liðin hafa mæst áður í mótinu þar sem norska liðið hafði betur, 35-32 þar sem íslenska liðið átti arfaslakan kafla í seinni hálfleik sem Noregur vann 9-1. ,,Það er gott að ná tveimur sigrum í röð og við erum mjög ánægð með þennan leik og spilamennskuna hjá stelpunum. Við hvílum okkur á morgun og mætum tvíefldar í leikinn gegn Noregi á sunnudaginn." ,,Vonandi náum við að spila góða vörn sem við náðum því miður ekki að gera gegn þeim síðast. Sóknarleikurinn var mjög góður á köflum og gott tempó. Við fengum mörg góð færi og nýttum þau vel." ,,Við förum glöð og sátt á koddann eftir daginn í dag," sagði Díana að lokum í samtali við Handkastið. Síðasti leikur Íslands gegn Noregi á EM fer fram á sunnudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.