Ungir leikmenn fá tækifæri – Sonja Szöke styrkir okkur vel og mikið
(Brynja Traustadóttir)

Handkastið heyrði aðeins í hinum afar geðþekka Árna Stefáni Guðjónssyni, þjálfara meistaraflokks kvenna í FH og fékk hann aðeins til að fara yfir sviðið með okkur og segja okkur frá því hvað væri að frétta úr herbúðum FH liðsins og hvað væri framundan.

FH leikur í Grill66-deildinni á komandi tímabili en liðið komst ekki í umspilið um laust sæti í Olís-deildinni á síðustu leiktíð.

Við gefum Árna orðið:

,,Við byrjuðum að æfa 28. júlí og stelpurnar voru afar duglegar í allt sumar. Sonja Szöke, markmaðurinn frá Ungverjalandi er byrjuð að æfa með okkur og styrkir okkur vel og mikið, það er ljóst. Miklar breytingar hafa orðið á hópnum á milli ára, uppleggið í Krikanum er að byggja liðið upp á ungum og efnilegum leikmönnum í bland við góða reynslumeiri leikmenn á borð við Ragnhildi Eddu, Telmu Medos, Fanney Þóru og fleiri leikmönnum."

"Björn Ingi verður ekki áfram sem aðstoðarþjálfari, á von á barni í haust og ákvað því að minnka aðeins við sig í þjálfun og verður með 3.fl.karla. Í staðinn er Sigurjón Friðbjörn kominn inn, en við vorum heppin að fá hann til okkar í Krikann í vor eftir að hann hætti með Gróttu í að sinna afreksþjálfun kvennamegin. Hann er gríðarlega reynslumikill, hefur þjálfað bæði í Olís og Grillinu og kemur með skemmtilega sýn á þetta. Það verður spennandi fyrir mig að vinna með honum, enda toppmaður líkt og Bingi sem er auðvitað mikil eftirsjá af."

"Liðið er á leið út til Ungverjalands í æfingaferð um miðjan ágúst og þar tökum við 1-2 æfingaleiki. Hér heima eigum við svo bókaða leiki við ÍR, Fjölni, Stjörnuna og HK áður en tímabilið byrjar hjá okkur 14. sept, þar sem við sitjum hjá í fyrstu umferð."

"Spennandi Grill deild framundan. Grótta með besta liðið á pappírnum fræga og hljóta að stefna á að fara beint upp aftur. Þar fyrir aftan eru flest liðin einmitt frekar búin að veikjast aðeins og Fjölnir svo að bæta hressilega í. Þannig að vonandi munum við sjá ansi þéttan pakka frá 2. sæti og niður. Deildin hefur verið skemmtileg síðustu ár, mikil barátta um laus sæti í umspilinu og Grill-lið að vinna Olís-lið í úrslitarimmunni. Eðlilega hafa því einhverjir leikmenn tekið stökkið upp í lið í Olísdeildinni, en á móti höldum við áfram að gefa næstu kynslóð tækifærin í Grillinu og þar eru margir ansi spennandi leikmenn á leiðinni hjá öllum liðum."

Áætlað er að Grill 66 deild kvenna hefjist 7. september. FH stelpur sitja hjá í fyrstu umferð og hefja því keppni sunnudaginn 14. september er þær fara í heimsókn í Grafarvoginn og spila þar við Fjölni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top