Alls vantaði fimm leikmenn í leikmannahóp KA gegn Selfossi í 1.umferð Olís-deildar karla á laugardaginn síðastliðinn. KA fór með sigur af hólmi eftir hafa verið undir lengi vel í leiknum. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA sagði í samtali við Handkastið að auk þess hafi Aron Daði Stefánsson verið í leikmannahópnum án þess þó að vera hundrað prósent spilfær. Í leikmannahóp KA á laugardaginn vantaði Arnór Ísak Haddsson, Patrek Stefánsson, Daníel Matthíasson, Einar Rafn Eiðsson og Ingvar Heiðmann Birgisson. Sá síðastnefndi sleit krossband rétt fyrir mót og verður ekkert með liðinu á tímabilinu. Andri Snær gerir ráð fyrir að meiðslalistinn hjá sér minnki á næstu dögum. ,,Vonandi verða Daníel og Patrekur klárir fyrir næsta leik en Arnór og Einar Rafn verða ekki með fyrr en í lok október í fyrsta lagi," sagði Andri Snær í samtali við Handkastið. KA mætir Haukum á heimavelli á föstudagskvöldið klukkan 19:00 í KA-heimilinu. Leikurinn verður sýndur í Handboltapassanum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.