Fjölnis stelpur uppskáru öruggan sigur
Eyjólfur Garðarsson

Í kvöld fengu Fjölnis stelpur Val 2 í heimsókn í Egilshöll í Grill 66 deild kvenna.

Frá upphafi leiks tóku Fjölnis stelpur öll völdin í leiknum og voru bara betri allan leikinn. Í hálfleik var staðan 14-9 fyrir Fjölni.

Í seinni hálfleik bættu Fjölnir bara enn meira í og náðu mest 11 marka forskoti. Lokatölur urðu svo 27-17. Sigurinn afar sanngjarn og öruggur. Val til varnar þá vantaði þeim greinilega nokkra leikmenn samkvæmt leikskýrslunni.

Fjölnis stelpur halda áfram að safna stigum í sarpinn og eru núna komnar með 3 sigra í deildinni.

Hjá Fjölni voru Stefanía Ósk Engilbertsdóttir, Vera Pálsdóttir og Sara Kristín Pedersen markahæstar með 5 mörk. Signý Pála Pálsdóttir varði 17 skot.

Hjá Val var Ágústa Rún Jónsdóttir markahæst með 8 mörk. Elísabet Millý Elíasardóttir varði 8 skot.

Sjáðu stöðuna í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top