
Ída Margrét Stefánsdóttir (Eyjólfur Garðarsson)
Í kvöld mættust HK og Grótta í Kórnum í Grill 66 deild kvenna.
Fyrir leikinn höfðu HK stelpurnar unnið alla 9 leikina sína og með sigri hefðu þær nánast getað gulltryggt sig upp í Olís deildina. Hjá Gróttu voru þær búnar að vinna 7 leiki, gert 2 jafntefli og 1 tap.
Gríðarlegt jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var þetta stál í stál. Var nánast bara jafnt á flestum tölum allar fyrstu 30 mínúturnar. Þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 12-11 fyrir HK.
Í seinni hálfleik hélt jafnræðið áfram. Algjör hörkuleikur og lítið var á milli liðanna. Ekta toppbaráttuslagur og 2 hnífjöfn lið að mætast. Þegar rúmar 5 mínútur lifðu leiks var staðan 20-20. Þegar rúmar 3 mínútur voru eftir var staðan 22-22. Gróttu stelpur skoruðu svo næstu 2 mörk og komust 22-24 yfir. Þegar mínúta var eftir kom Ída Margrét Gróttu yfir í 22-25. Þórhildur Braga klóraði í bakkann fyrir HK og minnkaði í 23-25 og urðu það jafnframt lokatölur leiksins.
Grótta heldur þar af leiðandi miklu lífi í baráttunni um 1. sætið og ljóst að Grótta er ekki búið að játa sig sigraða um að komast beint upp í Olís deildina.
Hjá Gróttu var Ída Margrét Stefánsdóttir markahæst með 8 mörk. Andrea Gunnlaugs og Anna Karólína vörðu samtals 15 skot.
Hjá HK var Danijela Sara með 15 varin skot. Og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir var markahæst með 8 mörk.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.