HK fær leikmann frá Haukum að láni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Ester Amira Ægisdóttir (Haukar topphandbolti)

Ester Amira Ægisdóttir hefur verið lánuð til Grill66-deildarliðs HK frá Haukum en Haukar tilkynntu þetta á samfélagsmiðlum sínum í kvöld.

,,Ester Amira fer á tímabundið lán til HK þar sem hún fær tækifæri til að safna reynslu og vaxa enn frekar sem leikmaður. Við vitum að hún mun koma sterkari til baka og halda áfram að láta til sín taka í okkar búningi," segir í tilkynningunni frá Haukum.

HK er í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna með 18 stig eftir 10 leiki, hefur jafnmörg stig og Grótta, en hefur leikið einum leik færra. Grótta vann HK um síðustu helgi og liðin eiga eftir að mætast einu sinni aftur eftir áramót.

HK er komið í jólafrí og leikur ekki aftur fyrr en 11.janúar er liðið heimsækir Val 2 heim.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Post Views: 50
Scroll to Top