Dagur Gauta í KA
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Dagur Gauta í KA Vinstri hornamaðurinn, Dagur Gautason hefur samið við sitt uppeldisfélag KA og leikur með liðinu út tímabilið. Dagur gerir samning við KA til ársins 2027. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni nú rétt í þessu.

Dagur gengur í raðir KA frá norska félaginu Arendal en hann hefur leikið með liðinu undanfarin ár að undanskildu hálfu ári í fyrra er hann fór til Montpellier í frönsku úrvalsdeildinni. Dagur er kominn til landsins og hefur æfingar með KA strax við fyrsta tækifæri.

Dagur Gautason var orðaður við heimkomu í KA fyrir tímabilið en hann var félagslaus eftir veru sína hjá Montpellier. KA bauð honum samning í sumar en á endanum ákvað Dagur að taka slaginn aftur með Arendal í Noregi. Nú er hann hinsvegar kominn aftur heim í KA og mun leika með liðinu í Olís-deildinni eftir áramót en KA er einnig komið í Final4 í Powerade-bikarnum.

Dagur er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir KA á síðustu vikum. Í morgun tilkynnti félagið að Ari Valur Atlason hafi gengið í raðir félagsins frá FH og fyrir jól gekk Ágúst Elí Björgvinsson markvörður í raðir félagsins eftir veru sína hjá Ribe Esbjerg síðustu ár. KA er í 5.sæti Olís-deildarinnar með 18 stig, stigi á eftir FH sem er í 4.sætinu.

Liðið var lengi vel nálægt toppi deildarinnar en tvö töp í röð gegn Haukum og Aftureldingu í desember reyndist liðinu dýr í toppbaráttunni.

Það er óhætt að segja að KA mæti með gríðarlega sterkt lið í Olís-deildina þegar deildin fer aftur af stað í byrjun febrúar og eru til alls líklegir miðað við þær styrkingar sem liðið hefur fengið síðustu vikur.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top