Hefur ekki tekið stökkið sem maður vonaðist eftir
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Línumaðurinn, Jón Ásgeir Eyjólfsson leikmaður Stjörnunnar gengur í raðir Vals næsta sumar og hefur gert þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið. Jón Ásgeir hefur verið lykilmaður í liði Stjörnunnar síðustu leiktíðir bæði varnar og sóknarlega.

Einar Ingi Hrafnsson var gestur í Handkastinu í síðustu viku þar sem hann var spurður út í félagaskipti Jóns Ásgeirs til Vals í sumar.

,,Þegar maður sá hann fyrst fyrir 2-3 árum koma á sjónarsviðið í Garðabænum þá hafði maður mikla trú á þessum dreng. Maður sá hæð og að hann gæti hlaupið völlinn. Maður sá að hann hafi þurfti að bæta skotið sitt en maður hefur séð að hann hefur hægt og rólega verið að vinna í því. Hann hefur kannski ekki tekið stökkið sem maður vonaðist eftir. Það vantar ennþá upp á líkamlegt stand og styrk," sagði Einar Ingi og hélt áfram:

,,Hann á bara að vera þakklátur fyrir það að fá tækifæri að fara í Val og gera allt sem þessir Valsarar segja honum að gera. Það er umhverfi sem getur hjálpað honum að taka það skref að fara til Evrópu en hann er ekki tilbúinn í það ennþá. Eftir 1 til 2,3 ár á Hlíðarenda þá gæti það breyst.”

Jón Ásgeir er annar leikmaður Stjörnunnar sem situr í 11.sæti deildarinnar sem hefur ákveðið að yfirgefa félagið í sumar. Adam Thorstensen hefur samið við Lubeck í þýsku B-deildinni fyrir næsta tímabil.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top