Janus Daði Smárason leikur sinn 100. landsleik fyrir Ísland í dag er liðið mætir Ítalíu í 1. umferð riðlakeppni Evrópumótsins sem hófst í gær. Leikur Íslands og Ítalíu hefst klukkan 17:00 og fer fram í Kristianstad í Svíþjóð. Leikurinn verður sýndur í beinni á RÚV en Handkastið verður á svæðinu og gerir upp 100. leik Janusar í hlaðvarpsþætti sínum strax að leik loknum. Fyrsti A-landsleikur Janusar Daða leikmanns Pick Szeged í Ungverjalandi var gegn Úkraínu í Sumy í Úkraínu 5. nóvember 2016 í undankeppni EM. Síðan þá hafa liðið 98 landsleikir og ljóst að 100. landsleikur Janusar verður í Kristianstad í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.