Það voru heldur betur stórtíðindi að berast frá Vestmannaeyjum en landsliðskonan, Andrea Jacobsen gengur í raðir ÍBV frá þýska félaginu, Blomberg-Lippe frá og með næsta tímabili. Andrea sem er fædd árið 1998 hefur leikið undanfarin ár erlendis, bæði í Svíþjóð, Danmörku og nú í Þýskalandi en hún gekk í raðir Blomberg-Lippe sumarið 2024 og er á sínu öðru tímabili með félaginu. ,,Við hjá ÍBV Handbolta erum mjög ánægð að tilkynna að Andrea Jacobsen hefur gert tveggja ára samning frá og með næsta tímabili og kemur til liðsins frá Blomberg-Lippe í Þýskalandi. Andrea er einn reynslumesti leikmaður íslensks handbolta og hefur leikið með íslenska landsliðinu um árabil auk þess sem hún hefur spilað erlendis hjá félögum í Danmörku og Þýskalandi. Samtals hefur hún spilað 66 landsleiki og skorað 116 landsliðsmörk fyrir Ísland, auk farsældar í Evrópukeppnum með félögum sínum í Þýskalandi," segir í tilkynningunni frá ÍBV. Kærasti Andreu, Róbert Sigurðarson er leikmaður karlaliðs ÍBV og gera má ráð fyrir því að Róbert leiki með karla liði ÍBV næstu tvö árin í það minnsta ásamt Andreu. ,,Við erum spennt að fá hana til Vestmannaeyja. Andrea bætir miklum styrk og reynslu við hópinn," segir ennfremur í tilkynningunni frá ÍBV.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.