Hvaða lið komast í Final 4?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

8-liða úrslitin í Powerade bikarkeppni kvenna hefjast í kvöld þegar Fram fær ÍR í heimsókn í Lambhagahöllina klukkan 19:30.

8-liða úrslitin dreifast á þrjá daga en tveir leikir fara fram annað kvöld og 8-liða úrslitunum lýkur síðan á miðvikudagskvöldið með einum leik.

Af þeim átta liðum sem eftir eru í Powerade bikarkeppni kvenna eru þrjú lið úr Grill66-deildinni sem er afar athyglisvert. Grótta gerði sér lítið fyrir og sló út ÍBV í 16-liða úrslitunum og þá sló FH út Stjörnuna í sömu umferð.

Þá er Víkingur einnig í keppninni en þær slóu út Grill66-deildarlið Fjölnis í 16-liða úrslitum með einu marki, 24-23.

8-liða úrslitin í Powerade-bikar kvenna:

Mánudagur:
19:30 Fram - ÍR

Þriðjudagur:
18:00 Víkingur - Haukar
19:30 Grótta - KA/Þór

Miðvikudagur:
20:00 FH - Valur

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top