Sigvaldi Björn Guðjónsson (Tom Weller / dpa Picture-Alliance via AFP)
Samkvæmt heimildum Handkastsins bendir allt til þess að landsliðsmaðurinn, Sigvaldi Björn Guðjónsson yfirgefi norskafélagið Kolstad en hann hefur ekki náð samkomulagi við félagið eftir að félagið óskaði eftir því að Sigvaldi auk annarra lykilmanna félagsins myndu taka á sig enn einu launalækkunina. Var þeim leikmönnum sem óskað var eftir að tækju á sig launalækkun velkomið að leita á önnur mið ef ekki yrði náð samkomulagi. ,,Maður var reiður og vonsvikinn, það er alveg ljóst. Þetta snýst um traust. Þetta er félag sem ég ber mikla virðingu fyrir og þykir vænt um, svo þetta er erfitt bæði fyrir mig og mína fjölskyldu. En svona er þetta. Við erum að reyna að sjá hvort við getum fengið eitthvað annað," sagði Sigvaldi í samtali við erlenda fjölmiðla á dögunum. Sigvaldi var hluti af íslenska landsliðinu í úrslitahelginni á Evrópumótinu um helgina en hann var kallaður inn fyrir undanúrslitaleikinn gegn Danmörku og var í leikmannahópnum gegn Króatíu í leiknum um bronsið sem Íslandi tapaði. Sigvaldi kom þó ekki við sögu í þeim leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.