Katrín Erla Kjartansdóttir hefur framlengt samningi sínum við Aftureldingu til næstu tveggja ára. Félagið tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum sínum í gær. ,,Það gleður okkur að tilkynna það að Katrín Erla Kjartansdóttir hefur ákveðið að framlengja samninginn sinn við Aftureldingu um tvö ár," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu. Katrín Erla kom til Aftureldingar frá Fylki árið 2022 og getur spilað bæði sem miðjumaður og skytta og þrátt fyrir að vera einungis 21 árs hefur hún leikið tæplega 70 leiki fyrir Aftureldingu. Afturelding er á botni Grill66-deildarinnar með 9 stig en er einungis einu stigi á eftir FH, Valur 2, Fram 2 og Fjölni sem öll eru með 10 stig. Sex umferðir eru eftir af Grill66-deildinni. ,,Við erum virkileg ánægð með að Katrín hafi ákveðið að framlengja samninginn sinn við félagið," sagði ennfremur í tilkynningunni frá Aftureldingu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.