Tryggvi Þórisson (Elverum)
Þrjú Íslendingalið áttu leik á Norðurlöndunum í kvöld en bæði toppliðið í Noregi og Svíþjóð áttu leik á meðan Holstebro gerði jafntefli í Danmörku. Elverum vann góðan heimasigur á Bækkelaget í kvöld, 33-26 en Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark úr tveimur skotum fyrir liðið sem er núna með sex stiga forskot á toppi deildarinnar en Kolstad á einn leik inni. Í Svíþjóð töpuðu efsta lið deildarinnar, Kristianstad á útivelli fyrir meisturunum í Ystad, 35-32. Einar Bragi Aðalsteinsson átti erfitt uppdráttar en hann skoraði þrjú mörk úr heilum tíu skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki. Kristianstad áfram á toppnum en Malmö geta minnkað muninn niður í eitt stig með sigri um helgina. Lærisveinar Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro mættu nýliðum HØJ Elite á útivelli í kvöld og úr varð bráðfjörugur leikur sem endaði með jafntefli, 28-28. Jóhannes Berg Andrason lét lítið fyrir sér fara í kvöld en hann klikkaði á eina skoti sínu í kvöld. Holstebro sitja um miðja deild og eru í fínum málum hvað varðar að komast í úrslitakeppnina en þeir eru í sjöunda sæti, fimm stigum fyrir ofan níunda sætið. Úrslit kvöldsins: Elverum 33-26 Bækkelaget Ystad 35-32 Kristianstad HØJ Elite 28-28 TTH Holstebro

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.