Lukas Sandell (Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP)
Tveir leikir voru á dagskrá í dag er 22.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar gekk í garð. Fyrsti leikur dagsins fór fram þegar Wetzlar tók á móti Leipzig. Leikurinn var jafn og spennandi allan leikinn, fyrri hálfleikurinn einkenndist af hraða og mörk og það Leipzig sem leiddu með einu marki í hálfleik. Í seinni hálfleik hélt spennan áfram þar sem hvorugt liðið náði að slíta sig frá. Lokatölur 26-26 þar sem atkvæðamesti leikmaður vallarins var Dean Bombac með 5 mörk og 5 stoðsendingar. Seinni leikur dagsins var er Rhein-Neckar Löwen tók á móti Lemgo. Lemgo tók völdin strax frá byrjun með góðum sóknar og varnarleik, og fóru með fjögurra marka forystu 13-17 í hálfleik. Í seinni hálfleik tók Löwen völdin og keyrðu á Lemgo menn og unnu sigur 32-30. Atkvæðamesti leikmaður vallarins var Lukas Sandell með 13 mörk og 3 stoðsendingar. Úrslit dagsins: Wetzlar-Leipzig 26-26 Rhein-Neckar Löwen-Lemgo 32-30

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.